Akureyrar flugvöllur
|
Flugstoðir eltiljós. Eitt af skemmtilegu verkefnunum okkar hefur verið að taka þátt í hönnun rafkerfa fyrir Akureyrarflugvöll. Fyrst stækkun flugstöðvarinnar á sínum tíma og síðar við lengingu flugbrautarinnar. Þar var um að ræða lýsingakerfi brautarinnar og stýringar á þeim. Síðasta verkið í þeirri vinnu sem búin er voru svokölluð eltiljós. |
Ljósmynd Arkitektur.is |
|
Eltiljós eru aðflugsljós sem gegna mjög mikilvægu hlutverki við að auka flugöryggi þar sem þau eru mjög skær og sjást þar af leiðandi fyrr í slæmu skyggni og eins og nafnið gefur til kynna „elta“ flugbrautina þannig að flugmennirnir sjá hvernig brautin liggur. Verkefnisstjóri Raftákns var Jón Heiðar Árnason. |
Akureyrarflugvöllur Ljósmynd: Hörður Geirsson |


