Fréttir

Bolungavíkurgöng opnuð

 

Bolungavíkurgöng voru opnuð fyrir umferð 25.september s.l. að viðstöddu fjölmenni.

Göngin liggja milli Bolungavíkur og Hnífsdals og taka af hinn illræmda veg undir Óshlíð, sem hefur verið einn hættulegasti vegur landsins. Þar með fækkar ó-vegunum um einn.

   bol_24.09.2010_014_640

Göngin eru glæsilegt mannvirki eins og öll síðari tíma göng sem gerð hafa verið hér á landi.

Raftákn óskar Vestfirðingum til hamingju með þessa frábæru samgöngubót.

bol_24.09.2010_024_640

Við erum stolt af því hjá Raftákni að hafa komið að hönnun allra ganga á Íslandi frá og með Vestfjarða-göngum.

Hjá fyrirtækinu er því fyrir hendi mikil þekking og dýrmæt reynsla á sviði hönnunar á raf- og stýrikerfum fyrir jarðgöng. Það er nú svo að kröfur breytast og með hverjum nýjum göngum hafa kröfur um lýsingu og öryggisbúnað aukist. Staðlar Norsku vegagerðarinnar eru lagðir til grundvallar hér á landi.

bol_24.09.2010_037_640



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning