Fimmti áfangi Hellisheiðarvirkjunar.
Veitur og virkjanir - þriðjudagur 15.sep.09 09:13 - Lestrar 377
Nú er búið að skrifa undir samning við Orkuveitu Reykjavíkur um fimmta áfanga virkjunarinnar þ.e. vélar fimm og sex. Eins og fyrr erum við í Raftákni samstarfsaðilar Siemens á Heiðinni og verkefnisstjóri okkar þar er Jón Viðar Baldursson sem jafnframt veitir starfsstöð Raftákns á höfuðborgarsvæðinu forstöðu. Með þessum samningi er búið að semja um sjö túrbínur en fimm eru þegar í gangi.
Fjórði áfanginn sem er varmaveita er nú í vinnslu og áformað að hún verði gangsett 1. október á næsta ári.
Myndirnar hér að neðan eru frá gangsetningu vélar 11.



