Fréttir

Héðinsfjarðargöng opnuð

 

 Héðinsfjarðargöng voru opnuð 2. október síðastliðinn. Mikið fjömenni var við opnunina enda íbúar sveitarfélagsins búnir að bíða með óþreyju eftir þessari samgönguleið.

 Ekki einasta stytta göngin leiðina milli Sigufjarðar og Ólafsfjarðar heldur tengja saman sveitarfélagið Fjallabyggð, án þess að þurfa að fara langa leið um fjallvegi.

Þar á ofan opna göngin aðgengi inn í hinn fagra Héðinsfjörð, sem áður var einungis á fárra færi að njóta.

 img_2580_640

Beðið eftir opnun. Allir fánar komnir á loft.  

Þarna eru talið frá vinstri til hægri: 

Fyrrverandi vegamálastjórar Helgi Hallgrímsson og Jón Rögnvaldsson, Hreinn Haraldsson núverandi vegamálastjóri, Ögmundur Jónasson núverandi samg.ráðherra, fyrrverandi samg.ráðherrar Kristján L. Möller, Sturla Bövarsson, Halldór Blöndal og Steingrímur J. Sigfússon. 

Raftákn óskar íbúum Fjallabyggðar til hamingju með göngin milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar um Héðinsfjörð.

 img_2594_640

Nú er bara að klippa



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning