Fréttir

Hellisheiðarvirkjun - stærsta verkefni Raftákns til þessa

Vél 11
Vél 11

Starfsmenn Raftákns ásamt Siemens í Þýskalandi sjá um alla forritun og uppsetningu stjórnkerfis gufuaflsvirkjunar OR á Hellisheiði. Nú þegar hafa verið gangsettar 3 vélar sem framleiða samtals 120MW.  Í haust verða síðan ræstar tvær 45MW vélar í viðbót. 

Á árinu 2009 er svo áætlað að virkja um 130MW í varmaorku (heitu vatni) fyrir höfuðborgarsvæðið.

Þar á eftir eru frekari áform um stækkun raforku vinnslunnar.

Stjórnkerfi virkjunarinnar nefnist PCS7 og er byggt upp af S7-400 iðnstýrivélum og WinCC skjákerfi.

Iðntölvurnar eru tengdar saman á tvöföldu ljósleiðaraneti og miðast uppbygging kerfisins við svokallað “redundancy”, þ.e. tvær miðeiningar (CPU) vinna samsíða og ef önnur fellur út heldur hin áfram. 

Fjöldi miðeininga sem nú er komið í virkni er 26, allar eru af gerðinni S7 417-4H sem er stærsta eining sem Siemens framleiðir í þessari 400 seríu.  Vinnsluhraði hvers CPU er um 0,03 µs.

Fjöldi stafrænna inn- og útganga er orðinn um 2500 og fjöldi hliðrænna inn- og útganga um 1000.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning