Pottastýring - hitaveitupottar
| Raftákn hefur, í samstarfi við Miðstöð ehf, hannað stjórnkerfi fyrir heita potta við heimili, sumarbústaði og orlofshús.
Forsaga málsins er sú að Orlofssjóður Lögreglufélags Akureyrar leitaði til stýrideildar Raftákns og Miðstöðvar ehf að hanna og setja upp lagnir og stjórnbúnað í heitan pott við orlofshús félagsins. Úr þessu samstarfi varð til ódýr, örugg og notendavæn lausn. Kerfinu öllu er stýrt frá einum snertiskjá með íslensku viðmóti. |
Stjórnskjár |
|
Nú þegar hafa verið sett upp samskonar lagnakerfi og stýringar við nokkuð marga potta. Upplýsingar um kerfin veitir Miðstöð ehf, Elías Óskarsson í síma 894 4383. Einnig er hægt að senda póst á netfangið midstod@isl.is Að sjálfsögðu veitum við hjá Raftákni einnig upplýsingar um stjórnbúnaðinn ef óskað er. |
Elías og Gunnar Nokkuð kátir með lífið |

