Instabus

Þróun á nýjum vörum og kerfum fyrir rafmagn í húsum hefur tekið miklum framförum undanfarið. BUS-kerfi eru mesta byltingin sem komið hefur fram í áraraðir.

AF HVERJU ER ÞAÐ KALLAÐ BUS KERFI?

Orðið BUS kemur úr tölvuheiminum og er notað um samskiptamáta alls sem er inni í tölvunni. Þar tengist búnaðurinn innbyrgðis og fær svo rafmagn í gegnum sameiginlega snúru. Í BUS-kerfum þarf þessi búnaður ekki nauðsynlega að tengjast við rafmagn, heldur getur hann eins notað innrautt-ljós eða útvarpsbylgjur.

HVAÐ ER INSTABUS?

Instabus er þekktasta BUS-kerfið í dag. Það er í mikilli þróun og aukast möguleikar þess stöðugt. Það er raflagnakerfi þar sem allar stofnlagnir að lömpum eða öðrum notendum sem nota rafmagn er lagt á hefðbundinn hátt, en kveikingar og stýringar eru lagðar á einum tölvustreng / instabus streng. Instabus er staðlað raflagnakerfi fyrir evrópskan markað þar sem allir helstu raflagnaframleiðendurnir vinna saman. Þetta þýðir að hægt er að kaupa raflagnaefni eða stjórnbúnað frá öllum stærstu framleiðendum s.s. SIEMENS, GIRA, BUS-JAGER, BERKER, ABB og yfir 50 öðrum aðilum.

HVERS VEGNA INSTABUS?

Ódýrari rekstrarkostnaður þar sem ljós eru aðeins kveikt með instabus þegar viðvera er höfð, ljós slökkna sjálfkrafa, að hluta eða af öllu leiti, ef utanaðkomandi ljós er nægilegt. Hægt er að tengja aðra rekstrarþætti s.s. hita og loftræstingu inn á kerfið og minnka þannig rekstrarkostnað á þeim.

Minna raflagnakerfi þýðir minni reykur ef um bruna yrði að ræða. Í Evrópu er mikið lagt upp úr þessu, þar sem nokkur slys hafa orðið þegar byggingar hafa fyllst af reyk við minni háttar bruna.

Hægt er að fylgjast með ástandi heillar byggingar eða hluta byggingar með litlu og meðfærilegu skjámyndakerfi sem tengist instabus, þar sem ástand kemur upp á skjái t.d. kveikt eða slökkt á skrifstofu, opinn eða lokaður gluggi.

Öryggisþætti byggingar er hægt að leysa með instabus þar sem skynjari kveikir ljós á daginn eða gerir viðvart um óæskilegar ferðir á næturnar.

Með Instabus er hægt að hafa flókna ljósastýringu t.d. í fundarherbergjum eða ráðstefnusölum sem er auðvelt og ódýrt.

Allar breytingar innanhúss eru auðveldar í framkvæmd og ekki þarf að leggja nýjar raflagnir ef veggir eru færðir eða felldir niður.

NOKKRIR AF KOSTUM INSTABUS

• Sveigjanleg hönnun með óendanlegum möguleikum til breytinga eða stækkunnar.
• Stjórnun á öllum búnaði frá einum stað.
• Auðvelt og fljótlegt að finna upptök bilana.
• Mikill sparnaður í orkunotkun með skynsamri nýtingu.
• Falleg hönnun með fjölmörgum útlitsmöguleikum.
• Öruggt og hefur sannað skilvirkni sína.
• Hægt að stjórna af hverjum notenda og/eða úr einni móðurstöð.

instabus1.gif

 

 

 

Þessi skýringarmynd sýnir vel hvernig hægt er að nota INSTABUS til þess að tengja ýmiss konar skynjara við búnað sem á að nota. Rauða línan sýnir búnað sem tengist við rafmagnið og græna línan táknar instabus tölvulínur.

 

 

 

 

FRAMTÍÐIN

Instabus er raflagnakerfi sem hefur verið við líði í ein 6-8 ár og eru sífellt fleiri framleiðendur að bjóða efni og tækjabúnað sem hægt er að tengja við instabus.  Það sem tryggir þróunina á þessu sviði er að allir framleiðendur eru búnir að samþykkja einn staðal og munu þróa hann í sameiningu.

Í dag eru að koma símkerfi, aðgangskerfi og fullkomin þjófavarnarkerffi viðurkennd af þýska VDS staðlinum sem er sá öruggasti í heimi.  Miklu fjármagni hefur verið varið í þróun instabus og er það öruggt að slík kerfi koma til með að verða ráðandi í framtíðinni.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning