Félagsstarf

Starfsmenn Raftákns eru með starfsmannafélag sem heitir Starfsmannafélagið Ölfótur Raftákni, skammstafað SÖR.

Félagið var stofnað 1.1.2002. Í félaginu er þriggja manna stjórn, kosin árlega á aðalfundi. Aðalfundur var síðast haldinn 20.04.2011.

Tveir af sitjandi stjórnarmönnum gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn, Finnur Víkingsson og Valdís Gunnlaugsdóttir. Nýir í stjórn eru Jón Kristinn Sigurðsson í aðalstjórn og Jóhannes Axelsson í varastjórn . Miklir stuðboltar allt saman.

 

 Finnur Víkingsson formaður  finnur_small

Valdís Gunnlaugsdóttir gjaldkeri 

 

 valds1_640
 Jón Kristinn Sigurðsson ritari  jonsipassamynd_minnku.
 Jóhannes Axelsson varastjórn  ji_axels_640

Úr stjórn fór Ásta Birgisdóttir. Starfsmannafélagið þakkar henni vel unnin störf og skemmtilegt samstarf. 

Tilgangur félagsins er í aðalatriðum að annast fræðslustarfsemi, beita sér fyrir fjölþættu skemmtana- og íþróttalífi og síðast en ekki síst efla og auka samstarf félagsmanna.

Félagið stendur fyrir hinni árlegu fjölskylduútilegu, þorrablóti og ýmsum öðrum uppákomum. Einnig hefur starfsmannafélagið haft forgöngu um að farið sé í ferðalög innanlands og utan m. reglulegu millibili. ´

 

 

 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning