Nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri
|
|
|
Raftákn átti lægsta boð í hönnun rafkerfa fyrir nýtt hjúkrunarheimili fyrir aldraða sem fyrirhugað er að reisa við Vestursíðu. Hjúkrunarheimilið samanstendur af 5 sjálfstæðum 9 íbúða húsum tengdum saman með tengigangi ásamt sameiginlegu samkomu- og þjónusturými. Þar er gert ráð fyrir samkomusal og kaffihúsi, aðstöðu fyrir iðju- og sjúkraþjálfun, hárgreiðslustofu og fótsnyrtistofu. Áætlað er að hjúkrunarheimilið verði tilbúið til útboðs 1. Apríl 2011. |

