Iðnskólinn verður Icelandair Hótel
|
Gamli Iðnskólinn við Þingvallastræti breytir nú um hlutverk í annað sinn. Eftir að Háskólinn á Akureyri hætti að nýta húsnæðið undir starfsemi sína og flutti alfarið að Sólborg var húsið selt og nú er verið að breyta því í hótel. Eigandi hússins nú er hlutafélagið Þingvangur. Raftákn sér um hönnun rafkerfa og lýsingar í hótelið |
|
|
Endurhanna þarf allt húsið að innan ásamt því að byggt verður við það til suðurs og einni hæð verður bætt ofaná húsið. Hönnunarteymi Raftákns skipa Brynjólfur Jóhannsson, sem er verkefnisstjóri, Jóhannes Axelsson og Finnur Víkingsson, einnig í teymi teiknararnir Ásta Birgisdóttir og Sara Ómarsdóttir. Staðsetning hússins gerir það ákjósanlegt til hótelrekstrar þar sem stutt verður í miðbæinn, bein leið í fjallið og sundlaugin hinu megin götunnar.
|
Tölvumynd / AVH. |

