Verkefni

Lýsing og lagnir við þjónustuhús Oddeyrarbryggju

Raftákn hannar lýsingu og raflagnir fyrir þjónustuhús sem Hafnarsamlag Norðurlands er að fara að byggja á Oddeyrarbryggju. Með gríðarlegri aukningu ferðamanna sem koma með skemmtiferðaskipum til Akureyrar hefur aukist þörfin fyrir þjónustu við þá við höfnina. AVH hannar húsið og eins og sjá má á myndinni hér til hliðar verður þetta glæsilegt hús.

Það skiptir því miklu að leggja metnað í lýsingarhönnun í og við húsið – því eins og marg sannað er setur góð lýsing punktinn yfir i-ið og undirstrikar góða og fallega hönnun.

Raftákn hefur fengið viðurkenningar frá Ljóstæknifélagi Íslands fyrir góða lýsingarhönnun.

Verkefnisstjóri Raftákns í þessu verki er Elmar Arnarson.

 



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning