Raftákn - Verkfræðistofa
Hellisheiði
Nú er farið að síga á seinni hlutann í Siemens verkefninu á Hellisheiðinni.
Undanfarin sjö ár hafa starfsmenn Raftákns unnið að uppsetningu og forritun á stýrikerfum fyrir Hellisheiðarvirkjun, sem undirverktakar Siemens sem átti lægsta boð í stýrikerfi virkjunarinnar.
Fyrstu árin voru hér á landi erlendir starfsmenn frá þeim ásamt starfsmönnum Raftákns,  en síðustu fjögur árin hafa starfsmenn Raftákns séð alfarið um alla forritunarvinnu varðandi þeirra hluta á Heiðinni.
Siemens Solutions Partner
Svona samningur opnar ýmsa möguleika fyrir Raftákn að taka að sér verkefni bæði hérlendis og erlendis.
Fyrirtækið er ákaflega stolt af starfsmönnum sínum og telur þetta staðfestingu á því að mikil þekking, færni og reynsla býr í mannauði þess. Árni V. Friðriksson undirritaði samninginn fyrir hönd Raftákns. Á myndinni tekur Árni við samningnum frá Sigurði R. Jónssyni fulltrúa Smith og Norland sem er umboðsaðili fyrir Siemens á Íslandi.
Kornþurrkun að Grund í Eyjafirði
Raftákn fékk það skemmtilega verkefni að hanna stýringu fyrir kornþurrkun fyrir Guðjón Þ. Sigfússon bónda að Grund i Eyjafirði.
Verkefnið snýst um að hanna stýringu fyrir þurrkun á korni og repjufræjum þannig að framleiðsluvaran sé tilbúin til mölunar. Til þess þarf að ná rakastigi niður í 15%. Stýringin heldur utan um allt þurrkunarferlið, skráir upplýsingar í rauntíma og tryggir stöðugleika í gæðum vörunnar. Þessi upplýsinga skráning tryggir rekjanleika í ferlinum og auðveldar gerð gæðahandbókar.
Þegar þurrkferlinum lýkur er kornið malað og þá tilbúið í kjarnfóðurframleiðslu. Enn sem komið er verður framleiðslan ekki ætluð til manneldis en e.t.v. í framtíðinni.
Icelandair Hotel v. Þingvallastræti
9. júní opnaði nýtt og glæsilegt Icelandair Hótel. Raftákn hannaði rafkerfi fyrir hótelið og hófst hönnunarvinnan 12. október á síðasta ári. Þetta hefur því verið stuttur framkvæmdatími og vel þurft að halda á spöðunum til að hægt væri að opna hótelið fyrir sumarið. Þetta er fyrri áfangi af tveimur.
Hótelið verður hið glæslegasta og óskum við eigendum þess og starfsfólki til hamingju með daginn og óskum þeim velfarnaðar. Hótelstjóri hins nýja hótels er Sigrún Björk Jakobsdóttir sem sést hér á myndinni til hliðar. Myndin er tekin í einu af herbergjum hótelsins.
Lamparnir á neðri myndinni hanga yfir borði í móttökunni.
Starfsmaður Raftákns skaust og tók myndirnar sem fylgja fréttinni þegar verið var að ganga frá og pakka upp vörum og húsbúnaði. Það var því ekki tilefni að þessu sinni til frekari myndatöku en verður bætt úr því þegar hótelið hefur opnað.
Vorfundur Samorku
Vorfundur Samorku var haldinn í Hofi dagana 26. og 27. maí s.l.
Raftákn var, að venju,með kynningarbás á sýningunni sem er fastur liður vorfundar sem haldinn er á þriggja ára fresti, alltaf á Akureyri. Sýningin hefur fram að þessu haft aðsetur í íþróttahöllinni en var nú í fyrsta skipti í Hofi.
Á myndinni hér til hægri er Jóhannes Sigmundsson í kynningarbás fyrirtækisins - allt orðið klárt fyrir opnun.
Jens Krogh Løppenthien frá Seven Technologies í Danmörku var gestur okkar á sýningunni og kynnti Aquis og Thermis, vaktkerfi frá 7t fyrir vatns- og hitaveitur. Þessi kerfi hafa ekki verið kynnt áður hér á landi en á sýningunni kom í ljós að full þörf var á því.