Sérfræðiþjónusta á rafmagnssviði
Byggingasvið
Hönnun raflagna, lýsingar, lágspennukerfa og öryggiskerfa fyrir hvers kyns mannvirki: skóla, íbúðarhúsnæði, íþróttamannvirki, atvinnuhúsnæði og opinberar byggingar.
Nánar um byggingasviðRaflagnahönnun
Almennar raflagnir, töfluteikningar og strenglagnir fyrir samgöngumannvirki, íbúðarhúsnæði, hótel, verslanir, íþróttamannvirki og opinberar byggingar.
Lýsingarhönnun- og forritun lýsinga
Inni- og útilýsing með áherslu á orkunýtingu, sjónræn gæði og arkitektúr. Útilýsing fyrir samgöngumannvirki s.s. veglýsing og jarðgöng.
Lág- og smáspennukerfi
Lagnir fyrir gagna- og fjarskiptakerfi, símakerfi, netuppbyggingu og dreifikerfi.
Öryggis- og brunakerfi
Brunaviðvörun, aðgangsstýring og myndavélakerfi í samræmi við reglugerðir og staðla.
Útboðsgögn og verklýsingar
Verklýsingar, magnskrár og útboðsgagnagerð fyrir rafmagnshönnun — undirbúin til að standast tímaáætlun og kostnaðarramma.
Verk- og framkvæmdaeftirlit
Verkefnastjórnun, byggingarstjórn og eftirlit á framkvæmdartíma svo verkefni standist tíma, kostnað og gæðakröfur.
Iðnaðarsvið
Sjálfvirkni, PLC-forritun, SCADA-kerfi og iðnaðarnet fyrir sjávarútveg, orkuframleiðslu, samgöngur og veitur, frá hönnun til gangsetningar.
Nánar um iðnaðarsviðIðnaðarstýringar
Rafhönnun, stjórnbúnaður og PLC-forritun fyrir samfelldan ferlisrekstur. Gangsetning á staðnum og yfirfærsla í rekstur er hluti af hverju verki.
SCADA og skjámyndakerfi
Rauntímayfirsýn, gagnasöfnun og atvikagreining yfir allan reksturinn. Endurnýjun eldri kerfa er unnin í áföngum meðan framleiðsla stendur yfir.
Sjálfvirkni og róbótar
Róbótastýring, vélsjón og línustýring í framleiðslu og vinnslu. Sjálfvirknin heldur afköstum og gæðum jöfnum milli vakta og lækkar hráefnistap.
Iðnaðarnet og OT-kerfi
Hringtengd iðnaðarnet með skýrum skilum milli OT- og IT-umhverfis. Netið er hannað fyrir samfelld samskipti þótt einn leggur rofni, með fjartengingu og vöktun.
Göng og samgöngustýringar
Rafkerfi, lýsing og stjórnkerfi fyrir jarðgöng, frá ljósastýringu og loftgæðavöktun til umferðar- og gjaldtökukerfa.
