Fara beint í efni
Raftákn verkfræðistofa

Stjórnkerfi fyrir iðnað og mannvirki

Við hönnum og forritum kerfi sem halda iðnaði, veitum og mannvirkjum gangandi. Allt frá einni dælustöð upp í landeldi, gagnaver eða jarðgöng.

Þjónusta

Við leggjum áherslu á faglegar og framsýnar lausnir sem standast kröfur viðskiptavina og framtíðarinnar.

Við höfum yfir 50 ára reynslu af fjölbreyttum verkefnum.

Rafhönnun, stjórnbúnaður og PLC-forritun fyrir samfelldan ferlisrekstur. Gangsetning á staðnum og yfirfærsla í rekstur er hluti af hverju verki.

Rauntímayfirsýn, gagnasöfnun og atvikagreining yfir allan reksturinn. Endurnýjun eldri kerfa er unnin í áföngum meðan framleiðsla stendur yfir.

Róbótastýring, vélsjón og línustýring í framleiðslu og vinnslu. Sjálfvirknin heldur afköstum og gæðum jöfnum milli vakta og lækkar hráefnistap.

Hringtengd iðnaðarnet með skýrum skilum milli OT- og IT-umhverfis. Netið er hannað fyrir samfelld samskipti þótt einn leggur rofni, með fjartengingu og vöktun.

Göng og samgöngu­stýringar

Rafkerfi, lýsing og stjórnkerfi fyrir jarðgöng, frá ljósastýringu og loftgæðavöktun til umferðar- og gjaldtökukerfa. Raftákn hefur komið að rafhönnun fjölmargra jarðganga á landinu:
  • Hvalfjarðargöng
  • Héðinsfjarðargöng
  • Fáskrúðsfjarðargöng
  • Almannaskarðsgöng
  • Vestfjarðagöng
  • Bolungarvíkurgöng
  • Vaðlaheiðargöng(gjaldtaka)

Okkar áherslur

Hvort sem verkefnið er heil virkjun eða ein dælustöð: sami agi, sama yfirsýn.
  • Traust og öryggi

    Við leitumst við að tryggja öryggi rekstrar og starfsfólks með okkar lausnum. Við nýtum m.a. gervigreind og hermanir til að betrumbæta lausnir okkar.

  • Framsýni og nýsköpun

    Við leitumst við að finna bestu og hagkvæmustu lausn hverju sinni og erum viðurkenndir samstarfsaðilar margra framleiðenda eins og Siemens, Schneider og Kuka.

  • Fagmennska og reynsla

    Við búum yfir áratuga reynslu af hönnun og forritun sjálfvirkra kerfa og vinnum samkvæmt vottuðu gæðakerfi ISO 9001.

  • Persónuleg þjónusta

    Allir viðskiptavinir eru í beinum samskiptum við sinn tenglið og hönnuð.

Heyrðu í okkur

Þú færð beint samband við þá sem hanna og forrita kerfið. Sömu sérfræðingar fylgja verkefninu frá fyrstu fyrirspurn til reksturs án milliliða í hönnun eða þjónustu.
Gunnlaugur Búi Ólafsson

Gunnlaugur Búi Ólafsson

SviðsstjóriRafmagnsverkfræðingur