Fara beint í efni
Raftákn verkfræðistofa

Rafmagns­hönnun fyrir mannvirki

Raflagnir, lýsing, smáspenna og öryggiskerfi fyrir mannvirki af öllum toga, frá íbúðarhúsi að stærstu opinberu mannvirkjum landsins.

Þjónusta

Sérfræðingar Raftákns hafa komið að hönnun og byggingu fjölda mannvirkja á Íslandi í yfir 50 ár. Við leggjum áherslu á lausnir sem endast og veita sveigjanleika til framtíðar.

Við notum þrívíddarhugbúnað við hönnun og samræmingu kerfa og nýtum í auknum mæli gervigreind til að tryggja gæði hönnunar. Starfsmenn búa yfir víðtækri reynslu af hönnun raflagna og lýsingar í allar gerðir mannvirkja, allt frá göngum og brúm yfir í hótel og sjúkrahús.

Almennar raflagnir, töfluteikningar og strenglagnir fyrir samgöngumannvirki, íbúðarhúsnæði, hótel, verslanir, íþróttamannvirki og opinberar byggingar.

Inni- og útilýsing með áherslu á orkunýtingu, sjónræn gæði og arkitektúr. Útilýsing fyrir samgöngumannvirki s.s. veglýsing og jarðgöng.

Lagnir fyrir gagna- og fjarskiptakerfi, símakerfi, netuppbyggingu og dreifikerfi.

Brunaviðvörun, aðgangsstýring og myndavélakerfi í samræmi við reglugerðir og staðla.

Verklýsingar, magnskrár og útboðsgagnagerð fyrir rafmagnshönnun — undirbúin til að standast tímaáætlun og kostnaðarramma.

Verkefnastjórnun, byggingarstjórn og eftirlit á framkvæmdartíma svo verkefni standist tíma, kostnað og gæðakröfur.

Okkar áherslur

  • Traust og öryggi

    Við leitumst við að tryggja öryggi rekstrar og starfsfólks með okkar lausnum. Við nýtum m.a. gervigreind og hermanir til að betrumbæta lausnir okkar.

  • Framsýni og nýsköpun

    Við leitumst við að finna bestu og hagkvæmustu lausn hverju sinni og erum viðurkenndir samstarfsaðilar margra framleiðenda eins og Siemens, Schneider og Kuka.

  • Fagmennska og reynsla

    Við búum yfir áratuga reynslu af hönnun og forritun sjálfvirkra kerfa og vinnum samkvæmt vottuðu gæðakerfi ISO 9001.

  • Persónuleg þjónusta

    Allir viðskiptavinir eru í beinum samskiptum við sinn tenglið og hönnuð.

Heyrðu í okkur

Þú færð beint samband við hönnuðina sem vinna fyrir þig. Hönnunarteymið leitast við að veita heildarlausn í raflagnahönnun í góðu samtali við viðskiptavini.
Elmar Arnarson

Elmar Arnarson

SviðsstjóriRafiðnfræðingur