Fara beint í efni
Raftákn verkfræðistofa

Verkfræði­stofa í eigu starfsmanna síðan 1976

Raftákn er verkfræðistofa á rafmagnssviði stofnuð 1. júní 1976 á Akureyri.
Stofnað
1. júní 1976

Á Akureyri

Starfsmenn
Um 35
Skrifstofur
Akureyri og Kópavogur
Gæðakerfi
ÍST EN ISO 9001:2015

Vottað 2011

Fyrirtækið er í eigu starfsmanna og hefur skrifstofur á Akureyri og í Kópavogi. Hjá Raftákni eru nú um 35 starfsmenn, verkfræðingar, tæknifræðingar, iðnfræðingar, tækniteiknarar og skrifstofufólk, sem sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði rafmagnshönnunar, sjálfvirkni, lýsingarhönnunar og verkefnastjórnunar.

Starfsemi okkar skiptist í tvö meginsvið: byggingasvið og iðnaðarsvið. Á byggingasviði sinnir Raftákn hönnun raflagna og lýsingar í hvers kyns mannvirki. Á iðnaðarsviði höfum við sérhæfða þekkingu á sjálfvirknilausnum, PLC-forritun og SCADA-kerfum.

Raftákn vinnur eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi ÍST EN ISO 9001:2015. Gæðastjórnunarkerfið var fyrst tekið út og vottað árið 2011. Raftákn er einnig viðurkenndur Siemens samstarfsaðili á sviði sjálfvirkni.

Gildi Raftákns

  • Framsækni
  • Fagmennska
  • Traust

Verkefni á döfinni?

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að koma verkefninu í framkvæmd.

Senda fyrirspurn