Fara beint í efni
Raftákn verkfræðistofa

Vafrakökustefna

Vafrakökur og vefmælingar á vef Raftákns.
Vefur Raftákns notar engar vafrakökur (cookies) til vefmælinga eða markaðssetningar og vistar ekkert í tækinu þínu í þeim tilgangi. Þess vegna er enginn vafrakökuborði á vefnum. Vefmælingar án vafrakaka Við notum þjónustuna PostHog til að telja heimsóknir og sjá hvaða síður, verkefni og fréttir eru skoðuð, hvaðan gestir koma og hvort fyrirspurnarformin virka. Gestir eru taldir með nafnlausu auðkenni sem PostHog reiknar út frá IP-tölu, gerð vafra og lykli sem skipt er um daglega og er síðan eytt. Auðkennið segir ekki hver þú ert og ekki er hægt að þekkja sama gest aftur daginn eftir. IP-talan er notuð til að reikna auðkennið en er ekki vistuð. Við skráum hvorki nöfn, netföng, símanúmer né efni fyrirspurna. Gögnin eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins. Ef þú vilt ekki láta telja þig Vefurinn virðir stillingarnar „Do Not Track“ og „Global Privacy Control“ í vafranum þínum: ef önnur hvor er virk er mælingakóðinn ekki sóttur og ekkert er sent úr vafranum þínum til PostHog. Fyrirspurnir sem berast okkur eru þó taldar nafnlaust, án nokkurra upplýsinga um sendanda. Spurningum um vefmælingar má beina á [email protected].
Allar stefnur

Verkefni á döfinni?

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að koma verkefninu í framkvæmd.

Senda fyrirspurn