Becromal/TDK
Hönnun og forritun stjórnkerfa

- Verkkaupi
- TDK
- Verktími
- 2013 – í gangi
- Staðsetning
- Akureyri
Verkfræðistofan Raftákn hefur frá stofnun TDK/Becromal haft umsjón og unnið að allri uppbyggingu sjálfvirkra stjórnkerfa í verksmiðju þeirra að Krossanesi á Akureyri
Fjöldi iðntölva í verksmiðjunni er yfir hundrað og þau merki sem tekin eru í stjórnkerfið hlaupa á tugum þúsunda. Undanfarin ár hefur verkfræðistofan Raftákn einnig komið að fjölmörgum verkefnum hjá TDK sem snúa að orkunýtingu og gerð kerfa sem aðstoða stjórnendur og rekstraraðila við að hámarka orkunýtingu og stuðla að markvissara viðhaldi vélbúnaðar.
Starfsemi Becromal á Íslandi felst í því að forma aflþynnur sem eru uppistaðan í rafmagnsþéttum.



