Hellisheiðarvirkjun
Hönnun, forritun og gangsetning stjórnkerfi gufuaflsvirkjunar OR á Hellisheiði

- Verkkaupi
- Orkuveita Reykjavíkur
- Verktími
- 2004–2016
- Staðsetning
- Hellisheiði
Starfsmenn Raftákns ásamt Siemens í Þýskalandi sjáu um alla forritun og uppsetningu stjórnkerfis gufuaflsvirkjunar OR á Hellisheiði.
Stjórnkerfi virkjunarinnar nefnist PCS7 og er byggt upp af S7-400 iðnstýrivélum og WinCC skjákerfi.
Iðntölvurnar eru tengdar saman á tvöföldu ljósleiðaraneti og miðast uppbygging kerfisins við svokallað “redundancy”, þ.e. tvær miðeiningar (CPU) vinna samsíða og ef önnur fellur út heldur hin áfram.
Fjöldi miðeininga sem komin var í virkni þegar þetta var skrifað var 26, allar eru af gerðinni S7 417-4H sem er stærsta eining sem Siemens framleiddi í þessari 400 seríu á þessum tíma. Vinnsluhraði hvers CPU er um 0,03 µs.
Fjöldi stafrænna inn- og útganga var orðinn um 2500 og fjöldi hliðrænna inn- og útganga um 1000 þegar þessi texti var ritaður.



