Sundlaugin á Blönduósi

- Verkkaupi
- Blönduósbær
- Staðsetning
- Blönduós
- Verkefnateymi
- Gunnar H. Reynisson
Verkfræðistofan Raftákn sá um hönnun á raflögnum í nýja sundlaug ásamt viðbyggingu við íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Einnig sá Raftákn um hönnun og forritun á stjórnkerfi fyrir sundlaugina.
Umhverfisvænar lausnir eru notaðar í sambandi við klór og sýrujöfnun í lauginni. Blönduósbær keypti búnað til klórframleiðslu á staðnum og sódi sem fellur til við þá framleiðslu er síðan notaður til jöfnunar á sýrustigi vatnsins sem er víðast hvar gert með kolsýru. Þetta er nýjung hér á landi. Klórframleiðslan er gerð með rafgreiningu á salti og eru klórgildin og sýrustigið vöktuð í gegnum iðntölvur og skjástýrikerfi sem hannað og forritað er af Raftákni. Stýrikerfið stýrir einnig öðrum þáttum s.s. hitastigi í pottum og laugum, hitastigi í sturtum, snjóbræðslu í stéttum o.s.frv.
Um er að ræða útisundlaug, potta og vaðlaug ásamt rennibraut og gufubaði. Sundlaugin var formlega tekin í notkun 17. júlí 2010 Hönnuður var Jón Guðmundsson arkitekt.
Hérna er krækja inn á vef Blönduóssskóla þar sem m.a. má sjá myndir frá sundlauginni og fræðast frekar um nýjungar í sambandi við klórframleiðsluna.



