Fáskrúðsfjarðargöng
Raflagnahönnun ásamt hönnun og forritun á stjórnkerfi

- Verkkaupi
- Vegagerðin
- Verktími
- 2003–2004
- Staðsetning
- Fáskrúðsfjörður
Verkfræðistofan Raftákn sá um alla raflagnahönnun og gerð útboðsgagna fyrir Fáskrúðsfjarðargöng. Einnig um hönnun og forritun á iðntölvukerfi og skjástýringu.
Fáskrúðsfjarðargöng voru opnuð fyrir umferð 9. september 2005. Síðan þau voru opnuð hafa starfsmenn Raftákns þjónustað stýrikerfi ganganna. Kerfið stýrir m.a. lýsingu, vöktun á mengun þ.e. ryk, Co2 og No, blásurum og brunaviðvörunarkerfi. Göngin eru 5850 m löng og tengja saman Fáskrúðsfjörð og Reyðarfjörð.



