Fara beint í efni
Raftákn verkfræðistofa

Samgöngur

Húsavíkurhöfðagöng

Húsavíkurhöfðagöng
Verkkaupi
Vegagerðin
Verktími
2016–2017
Staðsetning
Húsavík

Verkfræðistofan Raftákn sá um útreikninga og hönnun á lýsingu, hönnun á rafkerfum, ljósleiðaralögnum og fjarskiptakerfi í Húsavíkurhöfðagöng ásamt gerð útboðsgagna fyrir raf- og stjórnkerfi ganganna.

Húsavíkurhöfðagöng eru 992 m löng og liggja í gegnum Húsavíkurhöfða frá hafnarsvæðinu á Húsavík að verksmiðjusvæði PCC á Bakka.

Göngin eru 10,8 m breið og er suðurendi ganganna í 6 m hæð y.s og fara þau mest í 21 m hæð y.s. Göngin eru ekki ætluð fyrir almenna umferð heldur eingöngu fyrir umferð frá höfninni að athafnasvæðinu við Bakka.

Raftákn hannaði stjórnkerfi ganganna og sá um forritun á upplýsinga- og öryggiskerfi þeirra.

Í göngunum eru notaðar Siemens ET200 SP iðntölvur og tengjast þær vaktkerfi Vegagerðarinnar með OPC.

Tengiliðir

Brynjólfur Jóhannsson

Brynjólfur Jóhannsson

Rafmagnstæknifræðingur

[email protected]
Jóhannes Sigmundsson

Jóhannes Sigmundsson

Rafmagnstæknifræðingur

[email protected]

Myndasafn

Svipað verkefni í bígerð?

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að koma verkefninu í framkvæmd.

Senda fyrirspurn