Fara beint í efni
Raftákn verkfræðistofa

Samgöngur

Norðfjarðargöng

Eftirlit með raflögnum og stjórnkerfi

Norðfjarðargöng
Verkkaupi
Vegagerðin
Verktími
2013–2018
Staðsetning
Norðfjörður

Verkfræðistofan Raftákn sá um eftirlit í Norðfjarðargöngum sem undirverktaki verkfræðistofunnar Hnits. Eftirlit Raftákns hefur snúið að eftirliti í tveimur útboðum Vegagerðarinnar í raf-, stýri- og fjarskiptalögnum og í stjórn- og fjarskiptakerfi ganganna. 

Verkefnið hófst í júní 2013. Fyrsta sprenging var 12. okt. 2013 og göngin formlega opnuð 11. nóv. 2017. Vinna Raftákns jókst hægt og rólega þegar á verktímann leið og náði hámarki síðustu vikurnar fyrir opnun. Eftir opnun og fram á sumarið 2018 var áfram unnið við eftirlit með frágangi og viðbótarverkum. Norðfjarðargöngin sem liggja á milli Eskifjarðar og Fannardals í Norðfirði eru næst lengstu göng í vegakerfinu á Íslandi, en eru lengstu göngin á milli tveggja staða, 7.900 m.

Tengiliðir

Finnur Víkingsson

Finnur Víkingsson

Rafiðnfræðingur

[email protected]
Brynjólfur Jóhannsson

Brynjólfur Jóhannsson

Rafmagnstæknifræðingur

[email protected]

Myndasafn

Svipað verkefni í bígerð?

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að koma verkefninu í framkvæmd.

Senda fyrirspurn