Jöfnunarstöð Strætó við Borgarbraut
Hönnun raflagna fyrir jöfnunarstöð Strætó

- Verkkaupi
- Akureyrarbær
- Verktími
- 2025
- Staðsetning
- Akureyri
- Verkefnateymi
- Ólafur Ingi Sigurðsson
Raftákn tók að sér hönnun raflagna fyrir jöfnunarstöð Strætó við Borgarbraut. Göngubrú, vestan stöðvarinnar, yfir Glerá er síðan góð viðbót við samgönguleiðir milli hverfa. Nýja jöfnunarstöðin leysir af hólmi skýli sem stendur á sama stað. Arkitektastofan Form hannar stöðina og verkefnið er unnið fyrir Akureyrarbæ. Hlutverk jöfnunarstöðvar er að rétta af tímasetningar í akstri strætóleiðanna, þ.e. strætisvagnar stöðva tímabundið á stöðinni áður en þeir leggja af stað í næsta hring. Jöfnunarstöð strætó hefur verið í miðbænum við BSÓ.
Gleráin og fjölbreytt umhverfi árinnar er eitt fallegasta svæðið í bæjarlandinu og því skiptir miklu að vanda til verka þegar skipuleggja á mannvirki eða aðrar framkvæmdir meðfram og við ána.



