Naustaskóli á Akureyri
Verkfræðistofan Raftákn sá um hönnun raflagna í Naustaskóla á Akureyri ásamt hönnun og forritun stjórnkerfa.

- Verkkaupi
- Akureyrarbær
- Verktími
- 2008
- Staðsetning
- Akureyri
- Verkefnateymi
- Finnur Víkingsson
Naustaskóli er opinn skóli sem hýsir samkomusali, mötuneyti, íþróttasal, kennslustofur, bókasafn og skrifstofur. Hússtjórnarkerfi er í byggingunni sem auðveldar alla stýringar á ljósum, loftræsingu, hitakerfum o.s.frv. Lausnir í rafkerfum eru allar hannaðar með tillliti til opinna lausna og breytanleika. Þannig er hægt að kveikja öll ljós sjálfstætt eða í breytanlegum samstæðum. VA arkitektar eru arkitektar að byggingunni.
Naustaskóli tók til starfa haustið 2009 og að staðaldri eru tæplega 400 nemendur í skólanum.



