Sundlaug Akureyrar – nýjar rennibrautir
Hönnun raflagna, lýsingar og endurhönnun stjórnkerfa

- Verkkaupi
- Akureyrarbær
- Staðsetning
- Akureyri
Verkfræðistofan Raftákn sá um hönnun raflagna, lýsingar og stjórnkerfis við endurbætur á sundlaugasvæðinu.
Búið er að setja upp þrjár nýjar rennibrautir í stað þeirra tveggja sem fyrir voru. Ásamt nýjum heitum og köldum pottum. Einnig var sólbaðsaðstöða endurgerð og gerður stór garður með leiktækjum.
Rennibrautirnar eru alls þrjár og nefnast þær Flækjan, Trektin og Fossinn. Flækjan verður lengsta rennibraut á Íslandi, alls 86 metrar að lengd. Trektin er 28 metra löng og Fossinn níu metra löng.
Sundlaugarsvæðið er stórglæsilegt og samanstendur af þremur sundlaugum inni og úti, sjö pottum heitum og köldum ásamt rennibrautum.
Raftákn sá hönnun allra lagna ásamt gerð útboðsgagna. Raftákn sá einnig um hönnun lýsingar á sundlaugarsvæði og neðanvatns í laugum og pottum áamt myndeftirlitskerfum. Einnig sá Raftákn um stýringu fyrir öll sundlaugarkerfi sem og forritun skjákerfis til stýringar á sundlaugarkerfum



