Arnar M. Ellertsson
Rafmagnstæknifræðingur
Raftákn hefur skipt um húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Við erum flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði á þriðju hæð að Skemmuvegi 2a í Kópavogi.
Starfsmönnum hefur fjölgað í starfsstöðinni sunnan heiða og líklegt að fleiri bætist við. Þetta nýja húsnæði er því að öllu leyti hentugra og betra fyrir starfsemi Raftákn auk þess sem aðstaða fyrir starfsfólkið okkar er betri á nýja staðnum. Mötuneyti er í húsinu og önnur aðstaða til fyrirmyndar. Það spillir svo ekki útsýnið sem er óviðjafnanlegt.
Byggingin hefur vottun frá BREEAM sem á að tryggja ákveðin gæði s.s. birtuflæði, loftgæði o.fl.